Menntakvika 2015

Menntakvika er árleg ráðstefna Menntavísindasviðs HÍ um rannsóknir, nýbreytni og þróun í menntavísindum. Hún verður haldin föstudaginn 2. október á Menntavísindasviði HÍ v/Stakkahlíð.

Á ráðstefnunni verða tvær málstofur um stærðfræði á vegum Rannóknarstofu um stærðfræðimenntun.

Aðgangur er öllum opinn og kostar ekkert. Ekki þarf að skrá sig á ráðstefnuna.

Drög að dagskrá eru hér: 

Einnig á facebook:




Stærðfræðinámskeið – GeoGebra

Rannsóknarstofa um stærðfræðimenntun í samstarfi við Flöt auglýsir stærðfræðinámskeið sem aðallega er ætlað kennurum á miðstigi. Sjá nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Stærðfræðinámskeið – GeoGebra – miðstig




Stærðfræðinámskeið fyrir kennara á unglingastigi

Rannsóknarstofa um stærðfræðimenntun í samstarfi við Flöt auglýsir stærðfræðinámskeið fyrir kennara á unglingastigi. Sjá nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Stærðfræðinámskeið – unglingastig




Stærðfræðinámskeið fyrir leikskólakennara

Rannsóknarstofa um stærðfræðimenntun í samstarfi við Flöt og RannUng auglýsir stærðfræðinámskeið fyrir leikskólakennara. Sjá nánar í meðfylgjandi auglýsingu.

Stærðfræðinámskeið fyrir leikskólakennara




Málstofa um stærðfræði

Nanna Þ. Möller og Heiða Lind Heimisdóttir

Nanna Þ. Möller og Heiða Lind Heimisdóttir

Mánudaginn 7. september var haldin málstofa á Menntavísndaviði HÍ v/Stakkahlíð. Hún var fyrsti dagskrárliður haustsins í samstarfi Rannsóknarstofu um stærðfræðimenntun, Flatar, félags stærðfræðikennara, og Stærðfræðitorgsins.

Kynning fór fram á tveimur nýlegum íslenskum rannsóknum sem voru meistaraverkefni til M.Ed. gráðu frá Kennaradeild Menntavísindasviðs HÍ.

Fyrirlesarar voru Nanna Þ. Möller grunnskólakennari í Sæmundarskóla og Heiða Lind Heimisdóttir grunnskólakennari í Norðlingaskóla.

Fyrirlestur Nönnu bar heitið „Það hugsar enginn eins…“ Notkun hugmyndakorta til að skapa umræður í stærðfræðinámi og fyrirlestur Heiðu Lindar Hugmyndir nemenda um sjálfa sig í stærðfræðinámi.

Þetta voru mjög áhugaverðir fyrirlestrar og fjölluðu báðir um þætti sem stærðfræðikennarar geta unnið með þ.e. umræður í stærðfræðinámi og sjálfsmynd nemenda.

Áhugasamir geta nálgast meistararitgerðirnar hér: Nanna Þ. Möller og Heiða Lind Heimisdóttir

Hlustað af athygli.




Dagskrá – haust – stærðfræði

Rannsóknarstofa um stærðfræðimenntun í samstarfi við Flöt, samtök stærðfræðikennara, stendur fyrir eftirfarandi dagskrá:

Haustdagskra