Dagur stærðfræðinnar – 5. febrúar 2016 – verkefni

Verkefni fyrir leik- og grunn- og framhaldsskólann.

Dagur stærðfræðinnar er fyrsta föstudag í febrúar ár hvert. Í ár hafa verið sett inn ný verkefni sem tengjast leiknum Að gefa fimmu. Markmið með degi stærðfræðinnar er tvíþætt. Að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu, einnig að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjá hana í víðara samhengi.

Gefðu mér fimmu – Give me five – Verkefni fyrir leik- og grunnskóla.

Verkefni úr þemaheftum fyrir leik- og grunnskóla.

Verkefni fyrir framhaldsskóla.
Hugmynd að úrvinnslu fyrir framhaldsskóla.

Myndir og frásagnir frá degi stærðfræðinnar eru vel þegnar á netfangið margreb@hi.is

Til hamingju með daginn og góða skemmtun!

 

 

 

 



 

 




Málstofa um stærðfræði – Nomad

Mánudaginn 1. febrúar verður kynning á Norrænum rannsóknum sem Íslendingar hafa tekið þátt í og fjalla um notkun á náms- og kennslugögnum í stærðfræði. Að málstofu lokinni verður aðalfundur Flatar.
Sjá nánar hér:  Málstofa – Nomad




Dagskrá VOR 2016

Rannsóknarstofa um stærðfræðimenntun í samstarfi við Flöt, samtök stærðfræðikennara, stendur fyrir eftirfarandi dagskrá:

Dagskrá vor 2016