Vefurinn Youcubed sem Jo Boaler stendur að og innheldur ýmis konar efni um stærðfræðinám og – kennslur fyrir bæði kennara og foreldra.
The Mathematics Assessment Project er samstarfverkefni Shell Centre við Háskólann í Nottingham og Háskólans í Berkeley Kaliforníu. Verkefninu er ætlað styðja kennara við að breyta áherslum sínum í kennslu og námsmati. Áhersla er lögð á leiðsagnarmat og gefin eru dæmi um verkefni sem taka á margvíslegri hæfni nemenda og sýnd eru dæmi um úrlausnir nemenda og hvernig meta má þær. Á síðunni Applying Mathematical Processes er að finna hugmyndir að verkefnum sem reyna á að nemendur beiti fjölbreyttum vinnubrögðum stærðfræðinnar og þar er einnig að finna efni sem styður kennara við að meta slík verkefni. Gefin eru matsviðmið og einnig eru dæmi um mismunandi úrlausnir nemenda og mat á þeim.