Eftir menntabúðir um stærðfræði
Takk fyrir áhugaverðar kynningar og gott spjall þið sem mættuð í menntabúðir um stærðfræði 10. maí. Nú er hægt að nálgast upplýsingar á netinu um hluta af því efni sem tekið var fyrir.
Takk fyrir áhugaverðar kynningar og gott spjall þið sem mættuð í menntabúðir um stærðfræði 10. maí. Nú er hægt að nálgast upplýsingar á netinu um hluta af því efni sem tekið var fyrir.
Kynjaðar staðalmyndir eða hlutlaus nálgun
Leiðir til að vekja áhuga stúlkna á raungreinum og stærðfræði
Tamsin J. Meaney, prófessor í stærðfræðimenntun við kennaramenntunardeild Högskolen i Bergen, hélt fyrirlestur á Menntavísindasviði v/Stakkahlíð þriðjudaginn 4. apríl.
Í sumar voru birtar niðurstöður úttektar á stærðfræðikennslu í níu framhaldsskólum. Úttektin var unnin á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins skólaárið 2013-14. Nokkur umræða varð í fjölmiðlum um niðurstöður skýrslunnar og eru stærðfræðikennarar hvattir til að kynna sér hana og ræða niðutstöður hennar. Skýrsluna má nálgast á vef ráðuneytisins.
Rétt er að minna á að hliðstæð úttekt var gerð á stærðfræðikennslu á unglingastigi í átta grunnskólum skólaárið 2011-12 og voru niðurstöður þeirrar skýrslu birtar í apríl 2012. Sú skýrsla fékk enga umfjöllun í fjölmiðlum. Skýrslu um úttektina má nálgast á vef ráðuneytisins.
Helen Símonardóttir kennari við Laugarnesskóla hefur útbúið efni fyrir foreldra þar sem þeir geta lært ýmis spil og leiki sem þeir geta notað til að efla talnaskilning barna sinna og jákvætt viðhorf þeirra til stærðfræði. Verkefnið var unnið með styrk frá Verkefna- og námsstyrkjasjóði KÍ og er upplýsingar um það að finna á heimasíðu Laugarnesskóla. Þar eru m.a. myndbönd þar sem spilin eru kynnt.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hefur gefið út bæklinginn Hjálpaðu barninu þínu að læra stærðfræði. Leiðbeiningar fyrir foreldra. Þar er að finna ýmis konar gagnleg ráð og hugmyndir um hvernig foreldrar geta stutt við stærðfræðinám barna sinna. Bæklingurinn er saminn af menntamálaráðuneyti Ontario í Kananda en þýddur og staðfærður af skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar með leyfi höfundar.
Finna má bæklinginn á 15 öðrum tungumálum en íslensku á síðunni: http://www.edu.gov.on.ca/abc123/